WOW mun hefja beint flug til Los Angeles og San Fransisco næsta sumar en þetta er í fyrsta sinn sem beint flug er í boði til Los Angeles. Áætlað er að fljúga fjórum sinnum í viku til Los Angeles og fimm sinnum í viku til San Fransisco og sala á fargjöldum mun hefjast í byrjun næsta árs.

WOW air mun nota þrjár nýjar Airbus A330-300 í flugin en þetta er stærstu þotur sem flogið hafa áætlunarflug til og frá Íslandi. Vélarnar geta tekið að hámarki 440 farþega en gert er ráð fyrir að flogið verði með 340 sætum til að geta boðið upp á aukið sætapláss.

Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air segir í tilkynningu um málið:

„Norður-Ameríku flug okkar sem og tengiflug okkar yfir Atlantshafið hefur gengið frábærlega og hefur sætanýting allt frá upphafi verið yfir 90%.  Það liggur því beinast við að bæta við Los Angeles og San Fransisco sem eru stórkostlegar borgir í Kaliforníu og styrkja enn frekar leiðarkerfi okkar. Ljóst er að það er mikil þörf og eftirspurn eftir góðu lággjaldaflugfélagi sem flýgur yfir Atlantshafið. Við höfum nú þegar lækkað verð um tugi prósenta og munum að sjálfsögðu halda því áfram.  Við hlökkum til að bjóða upp á þessa tvo áfangastaði á vesturströnd Bandaríkjanna á frábærum verðum. Með þessari aukningu mun WOW air meira en tvöfalda sætaframboð sitt á næsta ári frá 900 þúsund sætum í ár í tæplega 2 milljónir sæta á næsta ári“