WOW air hefur gert sölu- og endurleigusamning (e. sale and leaseback agreement) við flugvélaleiguna SKY Leasing en samningurinn var undirritaður í dag að því er kemur fram í tilkynningu frá WOW. Um er að ræða sölu á tveimur Airbus A321ceo vélum, árgerð 2018 en WOW air undirritaði kaupsamning beint við flugvélaframleiðandann Airbus og greiddi vélarnar að hluta árið 2016. Við afhendingu flugvélanna fær WOW air um 4 milljarða króna. Fyrri flugvélin verður afhent í janúar 2018 og seinni vélin í apríl 2018. Vélarnar verða skráðar og reknar á flugrekstrarleyfi WOW air og notaðar í ört vaxandi leiðarkerfi félagsins.

Í tilkynningunni segir að með þessum samningi hafi WOW air fullfjármagnað rekstur félagsins út árið 2019. Einnig hafi flugfélagið fullfjármagnað flugvélaþörf sína út 2019 en nú þegar liggur fyrir að félagið muni fá sjö nýjar Airbus vélar á næsta ári, þar af fjórar glænýjar 364 sæta Airbus 330neo vélar sem munu koma til landsins í lok næsta árs.

“Það er mjög ánægjulegt að sjá hvað erlendir fjármögnunaraðilar hafa sýnt okkur mikinn áhuga sem endurspeglast í hagstæðri langtímafjármögnun á flugflota félagsins” er haft eftir Skúla Mogensen forstjóra og stofnanda WOW air.

“Við hjá SKY Leasing erum stolt af því að styðja við þennan mikla vöxt WOW air og hefja þetta langtímasamband með þessum sölu- og endurleigusamningi. Þessar tegundir véla, Airbus A321-200 eru veigamikill þáttur í flota WOW air og strategískriískri stækkun félagsins. Við hlökkum til að styðja við flugfélagið á komandi árum“ er jafnframt haft eftir Steven Patch framkvæmdastjóra markaðssviðs hjá SKY Leasing.