Wow magazine verður í framtíðinni gefið út af flugfélaginu Wow air en það var áður gefið út í samstarfi við útgáfufélagið Birtíng. Tímaritið Wow magazine fagnaði nýverið eins árs útgáfuafmæli sínu en tímaritinu er dreift um borð í flugvélum Wow air.

Tímaritið mun áfram koma út á tveggja mánaða fresti auk þess að vera aðgengilegt á netinu. Guðrún Vaka Helgadóttir hefur verið ritstjóri blaðsins frá upphafi og mun hún stýra blaðinu áfram fyrir hönd Wow air.

„Helstu breytingarnar sem verða á útgáfunni eru þær að auglýsingasala og ritstjórn blaðsins færist nú yfir til Wow air, og það má því segja að Wow air sé orðið útgáfufélag. Við ætlum einnig að auka dreifinguna til muna á helstu ferðamannastöðum hér innanlands,“ segir Guðrún Vaka.