„Það er ánægjulegt að með markvissum markaðsaðgerðum allan ársfjórðunginn tókst okkur að viðhalda vexti og tryggja markaðsleiðandi stöðu í sölu á reyktum laxi og andalifarkæfu (foie gras) yfir hátíðarnar,“ segir Xavier Govare, forstjóri Alfesca í uppgjörstilkynningu frá félaginu sem í morgun birti uppgjör fjórða ársfjórðungs.

Þannig hafi Labeyrie haldið 23,7 og 20,6% markaðshlutdeild í þessum vöruflokkum.

Hann segir að Alfesca hafi tekist að ná jafngóðri sölu og á síðasta ári þrátt fyrir umtalsverðan samdrátt í almennri neyslu á 2. ársfjórðungi.

„Þessi árangur náðist með því að leggja fé í markaðssetningu og stýra verði til að tryggja að við værum samkeppnishæf en það setti pressu á framlegðina,“ segir Govare í tilkynningunni.

„Hins vegar hafði efnahagsumhverfið áhrif á afkomuna, þar sem neytendur leita leiða til að spara og kaupa ódýrari vörur. Samsetning vörusölunnar varð því óhagstæðari, þar sem minna seldist af merkjavöru og framlegð varð minni.“

Þá kemur fram að hærrahráefnisverð á laxi og andaafurðum hafði einnig áhrif á afkomuna en félagið varð að taka þær hækkanir sem urðu fyrr á árinu, að fullu á sig á ársfjórðungnum.

Einnig hafi fall sterlingspunds gagnvart bandaríkjadal hækkað hráefnisverð á rækju sem greitt er fyrir með dollurum og framkallaði óhagstæðan gengismun sem kemur fram þegar starfsemi Alfesca í Bretlandi er gerð upp í evrum.

„Við reiknum með að markaðsaðstæður á seinni hluta fjárhagsársins verði mjög erfiðar og að almanaksárið muni almennt einkennast af ókyrrð í kjölfar þess að væntingar neytenda hafa fallið umtalsvert undanfarna mánuði,“ segir Govare.

„Við gerum ráð fyrir að sú tilhneiging neytenda að leita eftir vörumerkjum verslana (private labels) til að gera hagstæðari kaup muni áfram vaxa. Við gerum einnig ráð fyrir að mánuðirnir framundan muni einkennast af ókyrrð á gjaldeyrismörkuðum eftir því sem áhrif efnahagskreppunnar koma í ljós. Viðbrögð okkar við ástandinu eru að leita leiða til að halda föstum kostnaði samstæðunnar í skefjum, auka skilvirkni og halda öflugri vöruþróun áfram í þeim tilgangi að auka fjölbreytni og styrkja stöðu okkar á lykilmörkuðum.“