Microsoft og Yahoo hafa lokið viðræðum sín á milli, a.m.k. í bili, eftir að Yahoo ákvað að birta auglýsingar frá Google á leitarsíðu sinni.
Microsoft hafði áður lýst yfir óánægju yfir þessu athæfi.
Sú staðreynd að Yahoo og Microsoft hafi gefið út yfirlýsingar um málið í sitthvoru lagi bendir til þess að ósætti sé komið upp á milli þeirra.
Féllu bréf í Yahoo um 10 % vegna þessa.