Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest útnefningu Janet Yellen sem næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Hún tekur við af Ben Bernanke um næstu mánaðamót og verður fyrsta konan til að gegna embættinu.

Bandaríska dagblaðið The Washington Post segir um málið að 56 þingmenn hafi stutt Yellen en 26 verið á móti. Kuldakastið í Bandaríkjunum og slæm færð olli því að illa var mætt í þingsal þegar kosið var um útnefningu Yellen.