Alls var 616 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í september sl., sem eru jafn margir samningar og í ágústmánuði. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fækkað um 21% á milli ára.

Þá var 1.1149 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í ágúst sem þýðir fjölgun samninga um tæp 2% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Samningum á landinu öllu hefur þó fækkað um tæp 22% á milli ára.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur fækkað jafnt og þétt frá því að fjöldi þeirra náði hámarki haustið 2010. Líkt síðustu ár tók fjöldi leigusamninga kipp upp á við í vor en ekkert í námunda við það sem var fyrir ár.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Norðurlandi eða 175 samningum. Þá var 150 samningum þinglýst á Vesturlandi, 120 samningum á Suðurnesjum og 62 samningum á Suðurlandi.

Loks var 18 samningum þinglýst á Austurlandi og 7 samningum á Vestfjörðum.

Á síðasta ári var um 9.950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010. Það sem af er þessu ári hefur tæplega 7.100 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af um 4.400 samningum á höfuðborgarsvæðinu.

© vb.is (vb.is)