Meira en 20 manns greindust með COVID-19 í gær að því er fram kom í máli Runólfs Pálssonar yfirmanns COVID-19 göngudeildar Landsspítalans í morgunútvarpi Rásar 2 . Staðfestar tölur verða birtar síðar í dag en ekki liggur fyrir hve margir hinna smituðu voru í sóttkví

Þá greindust 13 manns með veiruna á laugardaginn og þar af voru 8 utan sóttkvíar.

Síðast var rýmkað um samkomutakmarkanir á fimmtudaginn en ekki liggur fyrir hvaða áhrif hin nýju smit á næstu skref hvað varðar sóttvarnarráðstafanir.