Yfir 40 þúsund manns hafa nú ritað nafn sitt við undirskriftalista sem birtist á vefnum www.lending.is. Nánar tiltekið höfðu tæp 42 þúsund skrifað undir nú rétt fyrir klukkan tólf í dag. Á síðunni lýsa menn yfir stuðningi við flugvöll í Vatnsmýri.

Hjartað í Vatnsmýri hóf söfnun undirskrifta á vefnum www.lending.is á föstudag í síðustu viku. Forsvarsmenn söfnunarinnar telja að engin önnur söfnun hafi farið jafn hratt af stað svo vitað sé.

Þeir segja jafnframt að skipting undirskrifta veki athygli. 53% allra undirskrifta eru af Höfuðborgarsvæðinu en 47% af landsbyggðinni.