Samkvæmt uppfærðum tölum Landssambands Veiðifélaga (LV) frá því 2. september var heildarveiði í 36 helstu laxveiðiám landsins orðin 43.083 laxar. Ytri Rangá og Hólsá eru þar með flesta laxa eins og fyrr, en Laxá í Ásum er með lang flesta laxa á stöng. Ítarlega umfjöllun um veiðina í sumar er svo að finna í Viðskiptablaðinu í dag.