Yfir 50 þúsund manns hafa nú skrifað nafn sitt á vef Þjóðareign. Eins og VB.is hefur greint frá er það áskorun á forseta Íslands um að vísa öllum lögum þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Samanborið við listann sem sagnafræðingurinn Stefán Pálsson birti á Facebook síðu sinni er þjóðareign núna í fimmta sæti yfir fjölda undirskrifta á undirskriftalistum. Fleiri hafa skrifað undir Þjóðareign en sölu HS-veitna og almenna skuldaleiðréttingu.

Hér fyrir neðan má sjá topp níu lista yfir fjölda undirskrifa sem Stefán birti. Yfirlýsing Indefence um að Íslendingar væru ekki hryðjuverkamenn er ekki talin með á listanum.

1. Reykjavíkurflugvöllur (2013) 69.637
2. Icesave II ( 2010) 56.089
3. Varið land (1974) 55.522
4. Áframhaldandi ESB-viðræður (2014) 53.555
5. Sala HS-veitna (2011) rúm 47.000
6. Gegn vegatollum (2011) rúm 41.000
7. Almenn skuldaleiðrétting (2011) 37.743
8. Icesave III (2011) rúm 37.000
9. Breytt veiðigjald (2013) 34.882

Árið 2004, skrifuðu tæplega 32 þúsund manns skrifuðu undir áskorun til forsetans um að vísa fjölmiðlalögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá neitaði hann að staðfesta lögin og vísaði þeim í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins til þjóðaratkvæðagreiðslu.