Velta með bréf í N1 nam 733 milljónum króna og voru 296 viðskipti með bréf í félaginu. Verð á bréfunum hélst nær óbreytt í dag, verð í fyrstu viðskiptum var 18,60 en verð í lokaviðskiptum var 18,80. Félagið var skráð á markað í dag, eins og VB.is hefur greint frá.

Miklu minni velta var með bréf í öðrum félögum. 107 milljóna króna velta var með bréf í VÍS, 85 milljóna króna velta var með bréf í Icelandair og 83 milljóna króna velta var með bréf í Reginn.

Velta á skuldabréfamarkaði nam tæpum 7,4 milljörðum króna. Velta með óverðtryggð bréf nam 5,4 milljörðum og velta með verðtryggð bréf nam 2 milljörðum króna.