Helgi Már Þórðarson, annar stofnenda aha.is segir að fyrirtækið sendi nú yfir 95% af pöntunum fyrirtækisins á rafmagnsbílum í stað bensínbíla. „Við erum að fækka bílum á götunum,“ segir Helgi.

„Við tökum til dæmis oft 4-8 pantanir úr matvöruverslunum í hverri ferð og spörum þannig jafnmargar ferðir í búðina fyrir viðskiptavini. Hver bíll getur tekið  30 ferðir á dag.” Hægt er að fá heimsent um allt höfuðborgarsvæðið samdægurs en út á land úr sérvöruverslunum á 2-3 dögum segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins.

Nýjar verslanir og veitingastaðir bætast við nánast vikulega inn á aha.is en sem dæmi má nefna að á síðustu vikum er búið að opna Hamborgarafabrikkuna, Sportís, Dressmann og Casa.

Sparar tíma að fá vörur heim

Helgi segir að fólk sé sífellt betur að sjá hversu mikinn tíma það sparar með því að fá vörur og veitingar sent heim. Það hafi til dæmis sýnt sig þegar aha.is hóf samstarf við Nettó síðastliðið haust en margir nýti sér þjónustuna, bæði einstaklingar og fyrirtæki.

„Eins pantar fjöldi fyrirtækja veitingar fyrir starfsfólk í hádeginu og það góða við að þegar starfsfólkið borðar saman skapast betri stemning á vinnustaðnum,“ segir Helgi. „Þá missa fyrirtækin ekki starfsfólkið út úr húsi en sum þeirra fyrirframpanta hjá okkur á föstudögum mat fyrir alla næstu viku.“

Keyptu 10 rafmagnsbíla

Síðasta haust keypti fyrirtækið 10 Renault ZOE rafmagnsbíla og hraðhleðslustöðvar sem settar voru upp í höfuðstöðvum aha.is. Helgi segir bílana hagkvæma í rekstri og smellpassa inn í umhverfisstefnu fyrirtækisins.

„Við sjáum ekki fram á annað en að héðan í frá verði eingöngu keyptir rafmagnsbílar. Það skiptir okkur máli að þjónustan sé umhverfisbætandi og viðskiptavinir okkar eru greinilega á sama máli.“

Um Aha.is

Aha.is er markaðstorg fyrir verslanir og veitingastaði á netinu. Á heimasíðu aha er hægt að kaupa og fá heimsent á 90 mínútum beint frá yfir 100 sölustöðum sem eru staðsettir um allt höfuðborgarsvæðið.