Rétt liðlega 98,3% allra aðildarfyrirtækja SA sem greiddu atkvæði um kjarasamning við ASÍ, samþykktu samningana. 0,4% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 1,3% tóku ekki afstöðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SA.

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga sem Samtök atvinnulífsins undirrituðu við aðildarsamtök ASÍ þann 21. desember 2013 fór fram meðal aðildarfyrirtækja SA dagana 16.-21. janúar. Kosningaþátttaka var 58%. Greidd voru atkvæði um alla samningana í einu á grundvelli atkvæðavægis aðildarfyrirtækja SA.

Eins og fram hefur komið í dag felldu um helmingur aðildarfélaga innan ASÍ samninginn.