Stjórn Eimskipafélagsins hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að vegna rannsóknar stjórnar á tilteknum atriðum sem tengjast rekstri félagsins frá fyrri tíð muni félagið ekki fjalla  um þau atriði með opinberum hætti fyrr en niðurstaða liggur fyrir.

Í yfirlýsingunni segir að stjórnin sendi hana út vegna umfjöllunar um málefni félagsins að undanförnu.

Í yfirlýsingunni segir að það sé rétt sem fram hafi komið að fyrrverandi forstjóri hafi höfðað mál á hendur félaginu vegna krafna hans um starfslokagreiðslur.

Félagið hafi stöðvað allar greiðslur til fyrrum forstjóra í maí sl. Á meðan málefnið sé til umfjöllunar hjá dómstólum muni félagið ekki tjá sig um það.