Vegna starfslokasamnings við Bjarna Ármannsson, fyrrverandi forstjóra, vill stjórn Glitnis taka fram að á aðalfundi bankans 2007 var henni veitt skýr heimild til að kaupa eigin hluti upp að 10% mörkum sem heimil eru samkvæmt hlutafélagalögum. Kaupverð hluta skyldi í slíkum tilvikum vera lægst 10% lægra og hæst 10% hærra en skráð kaup- eða sölugengi í Kauphöll Íslands á hverjum tíma. Þessi heimild er í fullu samræmi við ákvæði 55. gr. hlutafélagalaga um þetta efni. Fyrir liggur að samningur við fyrrum forstjóra var innan þessara vikmarka og þar með innan þess umboðs sem stjórn var veitt á síðasta aðalfundi. Nýkjörin stjórn bankans taldi æskilegt að við forstjóraskipti yrði gengið skýrlega frá starfslokum fráfarandi forstjóra. Fól það m.a.í sér að félagið keypti öll hlutabréf hans í bankanum. Gengið endurspeglaði markaðsaðstæður og væntingar á þeim tíma.

Samningur vegna ráðningar Lárusar Welding

Þegar Bjarni Ármannsson lét af störfum var ljóst að vandasamt yrði að fylla skarð hans. Stjórnin hafði það hlutverk að finna hæfan arftaka og fyrir valinu varð Lárus Welding sem þá starfaði sem framkvæmdastjóri Landsbankans í London. Lárus hafði á þeim tíma áunnið sér ákveðin starfskjör og réttindi sem hann lét af hendi þegar hann skipti um starfsvettvang. Við ráðningu hans var nauðsynlegt að bæta honum þann fjárhagslega skaða sem hann ella hefði orðið fyrir við starfsskiptin. Stjórnin lýsir yfir ánægju sinni með þau störf sem Lárus hefur innt af hendi frá því að breytingar voru gerðar á yfirstjórn bankans um vorið 2007.

Kaupréttarsamningar við aðra starfsmenn bankans

Í samræmi við starfskjarastefnu Glitnis banka hf., samþykkti stjórn félagsins þann 30. maí sl. kaupréttarstefnu vegna þess sem eftir lifði ársins 2007 og ársins 2008. Samkvæmt henni er heimilt að gera kaupréttarsamninga fyrir allt að 550 milljón hlutum við lykilstarfsmenn í bankanum. Kaupréttarverðið við gerð kaupréttarsamninga á þeim tíma var kr. 27,5 sem var verð hluta í Glitni banka hf. á þeim degi. Gerð kaupréttarsamninga við starfsmenn er í samræmi við það sem þekkist hjá öðrum fjármálafyrirtækjum hérlendis og erlendis.

Ljóst  er að ávinningur kaupréttarhafa er háður því að gengi bankans hækki og verðmunur myndist á markaðsgengi hlutabréfa í bankanum og gengi kaupréttar. Þannig hefur starfsfólk með kauprétti hvata að því að vinna að því að auka hagnað félagsins og hámarka hag hluthafa.

Hafa ber í huga að raunkostnaður fellur ekki til vegna slíkra samninga nema hlutabréf hafi hækkað umfram viðmiðunargengi og hluthafar þar af leiðandi notið verðhækkunar á bréfum sínum. Ljóst er að til þess að bankinn verði fyrir raunkostnaði vegna samninga sem gefnir voru út árið 2007, í samræmi við kaupréttarstefnu, þarf gengi félagsins að hækka um 40-50% frá núverandi markaðsgengi.