"Stjórn Símans hefur borist bréf frá einum hluthafa Símans þar sem óskað hefur verið eftir að stjórnin boði til aukahluthafafundar. Það erindi verður tekið fyrir á stjórnarfundi fyrirtækisins eins og önnur erindi sem berast stjórn. Bréfritara verður svarað efnislega." Þetta segir í yfirlýsingu sem undirrituð er af Rannveigu Rist, stjórnarformanni Símans.