Vegna umræðu sem orðið hefur í kjölfar sjónvarpsþáttarins Kompáss sem sýndur var sl. mánudagskvöld vilja eigendur heilsuræktarstöðvarinnar World Class koma eftirfarandi á framfæri:   Sá einstaklingur sem fjallað hefur verið um í tengslum við umræddan sjónvarpsþátt starfar ekki lengur hjá World Class.

World Class gengur ávallt úr skugga um að þeir ráðnir eru til starfa séu heiðarlegir og ábyggilegir einstaklingar. Er meðal annars krafist sakavottorðs. Umræða síðustu daga undirstrikar nauðsyn þess að hvergi verði slakað á í þessum efnum.