Óvissa um verðbólgu næstu ára hefur aukist eftir yfirlýsingu forsætisráðherra um að hann vilji að Seðlabanki Íslands taki upp aðra vaxtastefnu og að til greina komi að fjölga seðlabankastjórum. Þetta segir í pistli IFS greiningar í dag.

Þar segir að á næstunni muni skýrast hvort sjálfstæði Seðlabankans verði í raun rýrt. Verði seðlabankarstjórum fjölgað til að breyta vaxtastefnu bankans gæti IFS greining þurft að uppfæra verðbólguspá sína.

„Of mikil óvissa er þó um fyriráætlanir stjórnvalda til að meta hvort að draga muni í raun úr sjálfstæði Seðlabankans. Hitt er hins vegar ljóst að verði dregið úr sjálfstæði Seðlabankans munu verðbólguhorfur versna,“ segir IFS greining.