Breska smásölukeðjan Halfords hefur ráðið einn af stjórnendum Wal-Mart sem forstjóra.
Maðurinn sem um ræðir er David Wild. Hann mun taka við stjórnartaumunum hjá Halfords í ágúst, og tekur þá við af Ian McLeod.
Halfords selja um eitt af hverjum þremur hjólum sem seld eru í Bretlandi. Félagið á meira en 400 verslanir í Englandi og Írlandi, samkvæmt frétt BBC.