Sigurjón Þ. Árnason, Halldór K. Lárusson og Elín Sigfúsdóttur stjórnendur Landsbankans ráðstöfuðu lánum upp á 117 milljarða króna þann 8. október 2008, daginn eftir að bankinn var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu. Síðasta fundargerð lánanefndar bankans er frá 8. október 2008.

Þetta kom fram í fréttum RÚV.

Segir að einhver þessara lána höfðu að öllum líkindum þegar verið greidd út. Fréttastofa Rúv hefur ekki getað fengist hvort öll lánin voru greidd út. „Af þeim 117 milljörðum, sem var ráðstafað þennan dag, runnu 70 milljarðar til félaga, í tengslum við stærstu eigendur bankans, þá Björgólf Guðmundsson og Björgólf Thor son hans,“ segir í fréttinni.