Að sögn Gísla Kjartanssonar, sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM), er beðið eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins á kaupum þeirra á Sparisjóði Ólafsfjarðar. Að sögn Gísla vænta þeir bréfs Fjármálaeftirlitsins nú öðru hvoru megin við páska. SPM hefur gert öllum stofnfjáreigendum Sparisjóðs Ólafsfjarðar tilboð um kaup á öllu stofnfé í sparisjóðnum. Tilboðið er með þeim fyrirvara að allir stofnfjáreigendur þurfa að samþykkja að selja Sparisjóði Mýrasýslu stofnfjáreign sína. Stjórn Sparisjóðs Ólafsfjarðar hefur tekið málið fyrir og mælir með því við stofnfjáreigendur að þeir samþykki tilboðið.

Að sögn Gísla eru engar breytingar fyrirhugaðar á starfsmannahaldi hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar verði fyrirhuguð kaup að veruleika. Viðskiptamenn sparisjóðsins eiga ekki að verða varir við þessa breytingu ef af verður segir Gísli. Eigið fé Sparisjóðs Ólafsfjarðar er um 700 milljónir króna.

Þegar gerð Héðinsfjarðargangna verður lokið þá er áætlað að Sparisjóður Siglufjarðar og Sparisjóður Ólafsfjarðar renni saman. Sparisjóður Siglufjarðar er í 100% eigu Sparisjóðs Mýrasýslu. Ekki eru fyrirhugaðar neinar breytingar á starfsmannahaldi hjá Sparisjóði Mýrasýslu og Sparisjóði Siglufjarðar í kjölfar þessara kaupa.