Starfsemi Eik banka hefur verið tekin yfir af hinum danska Financial Stability Company. Bankinn gerði samkomulag þess efnis þann 30. september síðastliðinn. Öllum skilyrðum hefur verið uppfyllt og tekur yfirtakan gildi í dag.

Starfsemi Eik banka hefur nú runnið inn í nýtt dótturfélag Financial Staibility Company sem heitir Eik Banki Føroya P/F.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar frá Odd Bjellvåg, stjórnarformanni Eik banka.