Fyrirhugað yfirtökuboð Baugs í verslunarkeðjuna House of Fraser, sem mun hljóða upp á 46 milljarða króna, ætti að verða samþykkt af hluthöfum ef stjórn fyrirtækisins leggur það fram, segir fjárfestingarbankinn Evolution Securities.

Boðið hljóðar upp á 148 pens á hlut og telst það rausnarlegt og sanngjarnt verð, segir í frétt Dow Jones.

Bréf í House of Fraser myndu seljast á minna en 120 pens, ef ekki væri fyrir kaupauka yfirtökuboðsins, segir í fréttinni.

Greiningaraðilinn William de Broe mælir með undirvogun í bréfum House of Fraser.