Baugur mun leggja fram 47 milljarða króna (350 milljóna punda) yfirtökuboð í House of Fraser á næstu dögum, að því er kemur fram í frétt Sunday Telegraph.

Tilboðið hljóðar upp á 148 pens á hlut.

?Það gæti tafist, en Baugur stefnir á að leggja tilboðið fram á fimmtudag eða föstudag," sagði heimildarmaður Sunday Telegraph.

Samstarfsaðilar Baugs í yfirtökunni eru HBOS PLC bankinn, FL Group og Kevin Stanford, stofnandi Karen Millen tískuvöruverslunarinnar.