Yfirtökunefnd fjallar nú um hvort Hannes Smárason, Baugur Group og tengdir aðilar séu yfirtökuskyldir í FL Group og stefnir nefndin að því að skila niðurstöðum fyrir lok ágústmánaðar. "Ef nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að yfirtökuskylda sé fyrir hendi í félaginu verða þessir aðilar væntanlega að taka yfir félagið á gengi kringum 16 sem er um 6% yfir núverandi markaðsgengi," segir í Hálffimm fréttum KB banka.

FL Group mun birta uppgjör sitt miðvikudaginn 17. ágúst.