Eignarhaldsfélagið Oddaflug ehf. sem er í eigu Hannesar Smárasonar stjórnarformanns FL Group hf. á nú 35,46% hlut í FL Group samkvæmt tilkynningu sem send var til Kauphallarinnar í gær. Fyrir átti félagið 30,54% hlut. Vangaveltur hafa vaknað um hvort yfirtökuskylda sé að myndast í félaginu en náin tengsl Hannesar við aðra í hluthafahópnum ýta undir það auk þess sem eigendahópurinnn hefur þrengst.

Ný stjórn félagsins var kosinn í lok júní eftir að fyrrverandi stjórn sagði af sér. Nýja stjórn skipa: Hannes Smárason, Einar Ólafsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Magnús Ármann, Sigurður Bollason og Þorsteinn M. Jónsson. Varamenn eru Kevin Stanford og Smári S. Sigurðsson.