Hvað varðar Innovate er til rannsóknar hvort félagið hafi haft nægar heimildir til þess að fresta upplýsingagjöf í tengslum við afskriftina, að sögn Úrsúlu Ingvarsdóttur, hjá FME. Úrsúla segir að Innovate málið hafi komið inn á borð stofnunarinnar í júní á þessu ári. FME sé ekki háð neinum tímamörkum við sína rannsókn. Afla þurfi gagna og ræða við aðila málsins og vænta megi þess að rannsóknin taki einhverja mánuði.
Allir þættir kannaðir
Hvað varðar spurninguna um yfirtökuskyldu og hvort hugsanlegt sé að yfirtökuskylda hafi í raun stofnast þegar Magnús Þorsteinsson vék úr stjórn félagsins þann 20. desember sl. segir Úrsúla að allir þættir verði kannaðir, Frá því Magnús vék úr stjórninni hefur ekki verið ljóst hver hefur farið með 33,18% hlut Magnúsar. Yfirtökunefnd, sem lauk störfum í lok júní, þegar starfstími hennar rann út, kannaði ekki spurninguna um yfirtökuskyldu í Eimskipafélagi Íslands, sem sérstakt mál, hvorki eftir að Magnús Þorsteinsson sagði af sér störfum sem stjórnarformaður 20. desember síðastliðinn, né við önnur tækifæri, að því er fram kom í samtali Viðskiptablaðsins við Viðar Má Matthíasson prófessor, sem var formaður nefndarinnar á meðan hún starfaði.
_______________________________________
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .