Yfirtökutilboð Símatúns ehf. sem birt var í Kauphöll Íslands hf. þann 21. janúar 2005 rann út kl. 17.00 í gær, eða þann 23. febrúar 2005. Við lokun markaða þann dag höfðu 97,69% hluthafa í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. samþykkt tilboðið. Uppgjör samkvæmt yfirtökutilboði hefur farið fram innan tveggja virkra daga frá því að undirritað samþykki tilboðs ásamt frumriti hlutabréfs árituðu um framsal til tilboðsgjafa barst Símatúni ehf.

Símatún ehf. mun á næstu dögum óska eftir því að Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. verði afskráð úr Kauphöll Íslands.