Þar sem Skipti ehf. hafa eignast 98,77% hlutafjár í Landssíma Íslands hf. mun félagið innan fáeinna daga gera öðrum hluthöfum Landssímans yfirtökutilboð í hlutafé þeirra í samræmi við ákvæði VI. kafla laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti. Verður hluthöfum boðið að selja hlutafé sitt á sama verði og Skipti ehf. keyptu hlutafé sitt af íslenska ríkinu.

Skipti ehf. mun ekki beita innlausnarrétti gagnvart öðrum hluthöfum sem er í samræmi við ákvæði kaupsamnings Skipta ehf. og íslenska ríkisins.