Félagið Bakk AL Holdings Limited og Bakkavor Group Limited hafa gert tilboð í alla almenna hluti Bakkavor Group Limited, en félagið er í eigu Bakkavararbræðra.

Skilmálar tilboðsins hafa verið sendir til hluthafa en kaupverðið 2,6909 bresk pund á hlut.

Þeir hluthafar sem ætla sér að samþykkja tilboðið þurfa að tryggja að skjal með samþykki þeirra berist umsjónaraðila í London fyrir klukkan 17:30 þann 15. mars næstkomandi eða koma skjali með samþykki á skrifstofur félagsins á Fiskislóð fyrir klukkan 17:00 þann 11. mars. Þetta kemur fram í auglýsingu sem birtist í dag.

Félag í eigu bandarískra fjárfestingasjóða í stýringu hjá The Baupost Group L.L.C. og bræðranna Ágústs Guðmundssonar, forstjóra Bakkavarar Group, og Lýðs Guðmundssonar, stjórnarformanns Bakkavarar Group keyptu nýlega 46% hlut í félaginu Bakkavor Group Ltd.