Myndbandasíður á borð við YouTube verður gert að greiða tónlistarmönnum og tónlistarútgefendum hærri greiðslur. Þetta kemur fram á vef BBC .
Hugmynd þessa efnis hefur verið lögð fram í tillögum á breytingum á evrópsku höfundaréttarlögunum.
Tónlistariðnaðurinn hefur lengi vel gagnrýnt YouTube fyrir að greiða ekki nóg fyrir þá tónlist sem er spiluð á vefnum.
Líklegt er talið að þrýstihópar eigi eftir að taka illa í þessar hugmyndir og að berjast gegn þeim.
Meðal tónlistarmanna sem hafa gagnrýnt YouTube fyrir að greiða tónlistarmönnum ekki nægilega fyrir spilanir á vefnum eru: Lady Gaga, Coldplay og Two Door Cinema Club.