Ekki var farið allskostar rétt með tilhögun á byggingu verslunarhúss í Borgarnesi í frétt hér í gær. Samkvæmt fyrirsögn mátti skylja það þannig að Bónus væri að byggja húsið þó hið rétta kæmi fram í sjálfri fréttinni. Hið rétta í málinu er að Þyrping hf. mun byggja um 1200 fermetra verslunarhús í Borgarnesi sem Bónus mun síðan leigja að stærstum hluta eða um 1050 fermetra. Ekki er búið að semja við aðra leigutaka.