Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, er launahæstur sveitarstjórnarmanna. Launatekjur hans á síðasta ári námu 3,2 milljónum króna á mánuði.

Í öðru sæti listans er borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson. Hann var einnig með 3,2 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi í Garðabæ.

Um 20 sveitarstjórnarmenn eru með yfir 2 milljónir króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.

Tíu tekjuhæstu sveitarstjórnarmennirnir:

  1. Gunnar Einarsson, fv. bæjarstj. Garðabæjar - 3,2 milljónir króna
  2. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri - 3,2 milljónir
  3. Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi Garðabæ - 2,9 milljónir
  4. Halla Björk Reynisdóttir, fors. bæjarstj. Akureyri - 2,6 milljónir
  5. Magnús Örn Guðmundsson, fv. forseti bæjarstj. Seltjarnarnes - 2,6 milljónir
  6. Jón Björn Hákonarson, fors. bæjarstj. Fjarðabyggð - 2,5 milljónir
  7. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstj. Akraness - 2,4 milljónir
  8. Aldís Hafsteinsdóttir, fv. bæjarstj. í Hveragerði - 2,3 milljónir
  9. Ármann Kristinn Ólafsson, fv. bæjarstj. Kópavogi - 2,3 milljónir
  10. Haraldur Sverrisson, fv. bæjarstj. Mosfellsbæjar - 2,3 milljónir

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði