Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), trónir á toppi lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar í flokki hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins. Heiðrún var að jafnaði með 3.879 þúsund krónur í laun á mánuði miðað við greitt útsvar. Hún var á öðru sæti listans í síðustu útgáfu Tekjublaðsins.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Kviku banka, og Halldór Benjamín Þorbergsson eru í öðru og þriðja sæti, hvor um sig með 3,8 milljónir á mánuði.

Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá stéttarfélaginu Eflingu, er í sjöunda sæti listans með 2,2 milljónir á mánuði að jafnaði á síðasta ári.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er í nítjánda sæti með 1,8 milljónir á mánuði. Drífa Snædal, sem sagði af sér sem forseti ASÍ á dögunum, var með 1,2 miljónir á mánuði. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var með 1.083 þúsund krónur á mánuði.

Tekjur tíu hæstu á mánuði:

  1. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, frkvstj. SFS - 3,9 milljónir kr.
  2. Sigurður Hannesson, frkvstj. Samt. Iðn. - 3,8 milljónir kr.
  3. Halldór Benjamín Þorbergsson, frkvstj. SA – 3,8 milljónir kr.
  4. Perla Ösp Ásgeirsdóttir, fv. frkvstj. áhættust. Landsb. – 2,7 milljónir kr.
  5. Karl Björnsson, frkvstj. Samb. ísl. sveitarf. 2,6 milljónir kr.
  6. Pétur Þorsteinn Óskarsson, frkvstj. Íslandsstofu – 2,6 milljónir kr.
  7. Þórey Sigríður Þórðardóttir, frkvstj. Landssamt. lífeyrissj. – 2,4 milljónir kr.
  8. Stefán Ólafsson, sérfr. hjá Eflingu – 2,2 milljónir kr.
  9. Katrín Júlíusdóttir, frkvstj. SFF – 2,0 milljónir kr.
  10. Finnur Geir Beck, forstöðumaður hjá Samorku - 2,0 milljónir kr.

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði