John Fredriksen er ríkasti Norðmaðurinn og annar ríkasti maður Skandinavíu.

Auður hans er metinn á um 13,5 milljarða dollara eða um 1.900 milljarða króna, sem þýðir að hann situr í 128. sæti Forbes-listans yfir ríkasta fólk veraldar.

Fredriksen á að baki skrautlegan feril. Raunar má deila um hversu norskur hann sé þar sem hann afsalaði sér norskum ríkisborgararétti og tók upp kýpverskan ríkisborgararétt eftir áralangar deilur við norsk skattayfirvöld.

Hann hefur auðgast ævintýralega á fjárfestingum í skipageiranum, sér í lagi á flutningum á olíu. Fredriksen fæddist árið 1944 í úthverfi Ósló. Móðir hans vann í mötuneyti og faðir hans var verkamaður á skipasmíðastöð. Fredriksen ætlaði sér alla tíð að ná langt. Hann hætti í námi 16 ára til og hóf að vinna. Ferill hans í flutningageiranum hófst þegar hann hóf að flytja fisk frá Íslandi til Hamborgar í Þýskalandi.

Líflína Ayatollah

Undir lok sjöunda áratugarins flutti Fredriksen til Beirút og hóf að flytja olíu fyrir Sádi-Araba og Írani. Þá flutti hann olíu fyrir bandaríska herinn í Víetnamstríðinu. Fredriksen stórefnaðist á styrjöld Írana og Íraka á níunda áratugnum. Hann var einn af fáum aðilum sem tilbúnir voru að flytja olíu fyrir Írani, m.a. vegna hættu á loftárásum frá íraska flughernum. Fredriksen er sagður hafa verið „líflína Ayatollah“ í stríðinu.

Fredriksen hefur sagt að ómögulegt sé að stunda viðskipti vegna skattpíningar norskra yfirvalda. Lengi vel neitaði Fredriksen að hann ætti nokkur skip og sagðist vera að stunda flutninga fyrir ótilgreindra fjárfesta. Það breyttist árið 1996 þegar hann keypti sænska skipafélagið Frontline. Floti félagsins tífaldaðist að stærð á næstu fimm árum og fór úr sjö olíuflutningaskipum í sjötíu árið 2001. Flutningageirinn er afar sveiflukenndur, enda eru dæmi um að verð fyrir fraktflutninga hafi fallið um 80-90% á örfáum árum.

Nánar er fjallað um málið í tímariti Frjálsrar verslunar, sem kemur út fimmtudaginn 13. apríl. Þar er m.a. fjallað um ríkustu Íslendingana. Hægt er að kaupa eintak af blaðinu eða gerast áskrifandi hér.