Ritið 300 stærstu, sem gefið er út af Frjálsri verslun, kemur út í fyrramálið. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um stærstu fyrirtæki landsins og er miðað við ársreikninga fyrir síðasta ár, árið 2021. Í bókinni er fyrirtækjunum raðað er eftir veltu, en einnig eftir geirum, starfsmannafjölda, meðallaunum og á fleiri vegu .

Marel er stærsta fyrirtæki landsins annað árið í röð en félagið velti ríflega 204 milljörðum króna á síðasta ári. Marel ber höfuð og herðar yfir önnur félög á listanum en í öðru sæti eru Hagar með 136,6 milljarða króna í veltu.

Marel féll þó niður um nokkur sæti á listanum yfir mesta hagnaðinn en Landsbankinn trónir þar á toppnum.

Meðfylgjandi er listi yfir tíu stærstu fyrirtæki landsins, sé horft til veltu árið 2021. Þrjú fyrirtæki sem reka álver komast á topp 10 listann í ár sem rekja má til mikillar álverðshækkunar í fyrra.

Nánar er fjallað um málið í bókinni 300 stærstu, sem kemur út á morgun. Hægt er að kaupa eintak af bókinni hér .