Í lok árs 2021 störfuðu 74 apótek Í hér á landi auk sjúkrahúsapóteks Landspítalans. Ríflega 46% apóteka landsins eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Næst kemur Norðurland með 17% apóteka, Suðurland með 11% og Vesturland og Vestfirðir með 10%. Þetta kemur fram í bókinni 300 stærstu, sem var að koma út og hægt er að kaupa hér. Áskrifendur geta nálgast efnið úr bókinni hér.

Algengast er að apótekin séu opin frá 9 á morgnana til 6 eða 7 á kvöldin. Mörg hver bjóða þó upp á lengri opnun, eins og Lyfja á Granda sem er opið alla daga til miðnættis. Þá eru apótek sem starfa í þéttbýliskjörnum úti á landi sem sinna mikilvægu hlutverki viðkomandi samfélaga. Þess má geta að elsta starfandi apótek landsins í einkaeigu er Siglufjarðar Apótek, en það var stofnað árið 1928.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði