Kristján Valur Ingólfsson, fyrrverandi vígslubiskup í Skálholti, var tekjuhæsti presturinn á landinu í fyrra og námu tekjur hans að jafnaði rúmlega 1,8 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út á þriðjudag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Næst tekjuhæsti presturinn var Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, en mánaðartekjur hennar námu að jafnaði 1,8 milljónum á mánuði.
Fimm tekjuhæstu prestar ársins 2018:
- Kristján Valur Ingólfsson, fv. vígslubiskup Skálholti 1,881 milljónir
- Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ísl. 1,820 milljónir
- Helga Soffía Konráðsdóttir, Háteigssókn 1,608 milljónir
- Sveinn Valgeirsson, dómkirkjupr. 1,582 milljónir
- Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur, Hafnarfirði 1,574 milljónir
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .