Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, ber höfuð og herðar yfir annað fjölmiðlafólk á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar þetta árið, en miðað við greitt útsvar þénaði hann að jafnaði um 5,5 milljónir króna á mánuði á síðasta ári.
Á eftir honum er Björn Ingi Hrafnsson, jafnan nefndur Björn Ingi á Viljanum, með um 3,9 milljónir króna á mánuði að jafnaði. Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs er þriðji á lista með um 3,2 milljónir á mánuði.
Fjórði á lista er Logi Bergmann Eiðsson, fréttamaður hjá Árvakri, að jafnaði með um 2,4 milljónir króna á mánuði og Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, er sá fimmti með um 2,2 milljónir.
Jóhanna Helga Viðarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Torgs, þénaði að jafnaði um 1,8 milljónir króna á mánuði, en hún er sjöunda á listanum og eina konan sem er á meðal tíu tekjuhæsta fjölmiðlafólksins.
Tekjuhæsta fjölmiðlafólkið árið 2020:
- Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins - 5.469
- Björn Ingi Hrafnsson, á Viljanum - 3.868
- Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs - 3.238
- Logi Bergmann Eiðsson, fréttamaður hjá Árvakri - 2.446
- Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar - 2.172
- Bogi Ágústsson, fréttamaður á. RÚV - 1.914
- Jóhanna Helga Viðarsdóttir, fv. framkvæmdastjóri Torgs -2.702
- Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður - 1.714
- Sölvi Tryggvason, blaðamaður - 1.503
- Kristjón Kormákur Guðjónssom, fv. vefritstjóri FBL - 1.474
Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2020 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2019, sem greiddur var árið 2020. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .