Tekjuhæsti forstjóri landsins og launahæsti Íslendingurinn á síðasta ári er Magnús Steinarr Norðdahl, sem lét af störfum sem forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail í október á síðast ári eftir að félagið var selt Aptos, félag í eigu Goldman Sachs. Mánaðartekjur hans námu 117,7 milljónum króna.

Við söluna voru gerðir upp þriggja milljarða kaupréttarsamningar við Magnús og aðra lykilstarfsmenn sem vænta má þess að skýri tekjur hans á árinu að nokkru leyti. Magnús var með tæpar 118 milljónir króna í launatekjur á mánuði í fyrra.

Næst tekjuhæsti forstjórinn er Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, með tæplega 43 milljónir króna á mánuði. Í þriðja sæti á listanum er svo Brett Albert Vigelskas, framkvæmdastjóri Costco á Íslandi, með ríflega 24 milljónir króna á mánði.

Tæplega 60 forstjórar voru með yfir 4 milljónir í mánaðartekjur í fyrra. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.

Tíu tekjuhæstu forstjórarnir:

  1. Magnús Steinarr Norðdahl, fv. forstj. LS Retail 117,7 milljónir króna.
  2. Árni Oddur Þórðarson, forstj. Marels 42,8 milljónir
  3. Brett Albert Vigelskas, frkvstj. Costco á Íslandi 24,3 milljónir
  4. Björn Hembre, forstjóri Arnarlax 23,9 milljónir
  5. Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstj. AtNorth 22,7 milljónir
  6. Hjalti Baldursson, frkvstj. Bókunar 21,8 milljónir
  7. Helgi Helgason, frkvstj. Verne Global á Íslandi 17,4 milljónir
  8. Jón Þorgrímur Stefánsson, forstj. NetApp 15,4 milljónir
  9. Kári Stefánsson, forstj. Ísl. erfðagr. 13,4 milljónir
  10. Margrét Björk Tryggvadóttir, forstjóri Nova 9,7 milljónir

Finna má Tekjublað Frjálsrar verslunar á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2021 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2020, sem greiddur var árið 2021. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.