Dagana 10.-13. október næstkomandi fer fram Arctic Circle ráðstefnan í Hörpu í Reykjavík. Artic Circle er alþjóðlegur vettvangur samræðu og samstarfs um málefni norðuslóða. Dagskrá ráðstefnunnar liggur nú fyrir og er aðgengileg á heimasíðu ráðstefnunnar (www.arcticcircle.org). Dagskráin sýnir að ráðstefnan er mjög stór og þátt í henni taka fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs, háskóla, umhverfissamtaka og allra þeirra sem yfirleitt hafa áhuga á þróun mála á norðurslóðum og hvaða áhrif hún hefur á þróun heimsmála.

Framsögumenn eru stjórnmálamenn, embættismenn, fræðimenn og stjórnendur - frá löndum í nágrenni við norðurheimskautið en einnig frá fjarlægari löndum. Fjallað verður um stjórnmál, samstarf, öryggismál, nýsköpun, skipulagsmál, flutninga, frumbyggja og ferðamennsku - svo örfá dæmi séu tekin. Arctic Circle ráðstefnan var fyrst haldin í Reykjavík haustið 2013, hún hefur verið haldin í árlega upp frá því og hefur öðlast töluvert vægi í alþjóðlegri umræðu um málefni norðurslóða.

Það er mikill heiður að fá tækifæri til að kveða sér hljóðs á þessari ráðstefnu, en sú er raunin með greinarritara sem ásamt félögum í MPM náminu við HR mun standa fyrir vinnustofu á Arctic Circle þar sem til skoðunar verður ábyrg verkefnastjórnun, sem lykill að árangri í margháttuðum verkefnum sem framundan eru á norðurslóðum.

Titill vinnustofunnar er nokkru afmarkaðri eða "Ábyrg verkefnastjórnun handan við heimskautsbaug" - og til skoðunar verður flókið og margslungið virkjanaverkefni á Grænlandi, framkvæmt við afar krefjandi aðstæður og í anda nútímalegra viðmiða um sjálfbærni. Fulltrúar íslenskra fyritækja sem leiddu þetta verkefni, verkfræðistofunnar Verkís og verktakafyrirtækisins Ístaks, munu greina frá undirbúningi og framkvæmd verkefnisins, en fulltrúar MPM námsins munu ræða almennt um fræðileg viðmið varðandi siðfræði og ábyrgð í undirbúningi og stjórnun verkefna og vonandi mun skapast áhugaverð og gefandi umræða meðal framsögumanna og þatttakenda.

Þó eitt tiltekið tilfelli sé til skoðunar á vinnustofunni er umræðan almenn og þessi stóri titill vinnustofunnar er því alls ekki út í bláinn. Óhætt er að halda því fram að til að bjarga heiminum frá yfirvofandi hamförum vegna loftslagsáhrifanna þurfi að standa fyrir hugarfarsbreytingu, draga fram sameiginlega sýn á stöðu mála, efla samstöðu, sameina krafta, standa fyrir víðtækri stefnumörkun og fylgja stefnu eftir með markvissum hætti um allan heim. Þetta mun ekki takast nema til komi fagleg verkefnastjórnun og því er nauðsynlegt að innleiða sjónarmið sjálfbærni í allri kennslu og þjálfun í stjórnun, og beita faglegri verkefnastjórnun í þeim margháttuðu og tröllvöxnu verkefnum sem framundan eru á norðurslóðum og um heim allan.

Höfundur er prófessor og forstöðumaður MPM náms við Háskólann í Reykjavík.