Með fjárlögunum tók ríkisstjórnin og ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi þá ákvörðun að auka ríkisútgjöld á Íslandi um tæp 20%. Þetta er mestu útgjaldafjárlög í áratugi.

Spurður út í gagnrýni Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á stjórnvöld um að hafa ekki dregið úr útgjöldum meira en raun ber vitni til að draga úr verðbólgu segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að stjórnvöld hafi farið í ýmsar aðgerðir til að sporna gegn þenslu.

Það má nefna almenna aðhaldskröfu, frestun á útgjaldasvigrúmi, varanlega lækkun ferðakostnaðar hjá ríkinu, lækkun framlaga til stjórnmálasamtaka.

Við þurfum í öllu falli að muna að verðbólgan kemur ekki með vindinum, og við vinnum ekki bug á vandanum með því að hækka einfaldlega launin um sífellt hærri krónutölu.

Það er brjóstumkennanlegt hjá Bjarna Benediktssyni að benda á að ferðakostnaður ríkisins og framlög til stjórnmálaflokka hafi verið lækkuð. Svona eins og það sé sérstakt og einstakt afrek hjá flokknum bísperrtum á fjóshaugnum, sem þykist standa sérstakan vörð um ríkisfjármálin dag og nótt og galar á fjögurra ára fresti „Lækkum skatta“!

***

Þegar ríkissjóður er rekinn með 120 milljarða halla ætti ekki nokkur einasti ríkisstarfsmaður að ferðast á kostnað ríkisins nema brýnir og verulegir hagsmunir íslenska ríkisins séu í húfi. Ríkið hefur hins vegar breyst í heimsferðaklúbb fyrir fólk sem er of fínt til þess að borga fyrir sig og ferðalög og dagpeningar eru álitin hluti af starfskjörunum. Þar setja starfsmenn ráðuneytanna ófagurt fordæmi, sem aðrir ríkisstarfsmenn hafa apað eftir (og embættismenn borgarinnar hafa toppað).

Og hvernig getur Bjarni leyft sér að nefna þessa 5% lækkun á framlögum til stjórnmálaflokka. Þessi ríkisstjórn, sem setið hefur frá 2017, hækkaði framlög til stjórnmálaflokka um 106% frá árinu 2018 til 2022, úr 354 m.kr. króna í 728 m.kr. á núverandi verðlagi. Fimm prósent lækkun er bara ekki neitt.

En fjármálaráðherranum og ríkisstjórninni til hróss þá réðist hún í „frestun á útgjaldasvigrúmi“. Það var gríðarlega vel af sér vikið og verður seint fullþakkað. Orðunefnd forsetans hlýtur að vera að fægja fálkaorður fyrir ríkisstjórnina.

Hvað þýðir annars „frestun á útgjaldasvigrúmi“?

***

Fráleitur málflutningur

Málflutningur forystumanna ríkisstjórnar stenst hvorki skoðun né gögn. Aðeins tvær skýringar kunna að vera að rangfærslunum.

Annað hvort eru þeir forystumennirnir að reyna að afvegaleiða almenning og skattgreiðendur, sem halda uppi ríkiskerfinu með skattgreiðslum af sjálfsaflafé sínu og eignum.

Nú eða að forystumennirnir hafi talið sér sjálfum sér trú um að sýndarheimur þeirra sé raunheimur.

Hrappar eða afglapar. Það er valið.

***

Af því tilefni vill Óðinn rifja upp hið fornkveðna, að það að ljúga að öðrum er ljótur vani; að ljúga að sjálfum sér er hvers manns bani.

Pistill Óðins birtist Viðskiptablaðinu sem kom út fimmtudaginn 16. febrúar 2022. Áskrifendur geta lesið hann í fullri lengd hér.