Mér svelgdist heldur betur á kaffibollanum í morgun þegar ég fór yfir skráningar í gagnaþon fyrir umhverfið. Kynjahlutföllin á skráðum þátttakendum voru virkilega skökk. Þrátt fyrir að ég sé ótrúlega ánægð með þann hóp sem hefur skráð sig og ég geti ekki beði eftir að sjá þær hugmyndir sem þau hafa fram að varpa, kom það mér talsvert á óvart hve fáar konur hafa skráð sig. Samanborið við aðrar keppnir og hraðla í nýsköpun er niðurstöðurnar svipaðar.

Hvernig fáum við enn fjölbreyttari hóp af fólki til þess að taka þátt í nýsköpun og þá sérstaklega þegar kemur að gögnum og gervigreind? Þá sérstaklega fólk af öllum kynjum og bakgrunnum.

Stór partur af því að vinna úr gögnum er gervigreind sem er einfaldlega gert með því að kenna forriti eða reikniriti ákveðið mynstur og mata það með gögnum. Niðurstöður eru síðan samþykktar eða ekki af einstaklingi sem þróar viðkomandi lausn. Því er mikilvægt að hópurinn sem komi að þróun gervigreindar sé fjölbreyttur til þess að niðurstöður hafi ekki innbyggða hlutdrægni sem gæti hampað öðrum hópi umfram annan.

Dæmi eru um að Snjallúr sýni ekki réttan fjölda brenndra kaloría hjá barnshafandi konum þar sem formúlan sem reiknar hve miklu þær brenna taka ekki tillit til breyttrar brennslu. Annað dæmi er forrit sem búið var til af Amazon til þess að fara yfir ferilskrár og velja hæfasta einstaklinginn í starfið. Þar sem forritið var búið til að körlum varð til innbyggð hlutdrægni sem gerði það að verkum að karlar voru valdir í störfin umfram jafnhæfar konur.

Þegar kemur að hlutfalli í námi virðist það mun skárra en á vinnumarkaði og nýsköpunarsenunni. Kynjahlutföllin þegar ég var í grunnnámi í iðnaðarverkfærði voru ansi jöfn og áhugi á áföngum tengdum nýsköpun jafnvel meiri meðal kvenna. Því spyr ég hvers vegna það sé ekki að skila sér sviði nýsköpunar? Sama gildir um hlutfall kvenkyns samnemenda minna í tölvunarfræði, afhverju eru þær ekki að skila sér út í tæknigeirann?

Það er mikilvægt að fjölbreytt fólk komi að bæði gerð og vinnslu gagna þar sem það hefur bein áhrif á líf okkar allra. Ég hvet því alla til þess að taka þátt í Gagnaþoni fyrir umhverfið sem fer fram 12.-19. ágúst n.k.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.