Eins og nöfn þeirra gefa til kynna fylgjast Huginn og Muninn grannt með gangi mála á HM í Katar. Þrátt fyrir mótahaldið sé umdeilt vegna ástands mannréttindamála í ríkinu er margt á mótinu til eftirbreytni. Þannig fagna hrafnarnir því sérstaklega að á síðustu stundu ákvað mótstjórnin að sækja í smiðju Knattspyrnusambands Íslands og banna alfarið sölu bjórs á leikvöngum keppninnar.

Hrafnarnir telja að þarna sé komin skýring á veru Vöndu Sigurgeirsdóttir í Katar. Rétt eins og á Laugardagsvellinum er bannið ekki algilt: Þeir sem hafa aðgang að VIP-stúkum keppninnar geta fengið sér nokkra skítkalda á meðan á leik stendur. Einnig er jákvætt fyrir orðspor Íslands að Katarar sæki sér fyrirmyndir til Íslands og KSÍ  í jafn ríku mæli og raun ber vitni þegar kemur að áherslum í lýðheilsu- og íþróttamálum.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði