Fyrir flest okkar hefur heimsfaraldur COVID-19 snarbreytt sumum þáttum lífs okkar. Í stað þess að mæta á skrifstofuna vinnum við að heiman með hjálp netsins og tækninnar, í stað þess að hittast tökum við fundi á Teams, Zoom og fjölmörgum öðrum stafrænum vettvöngum. Í stað þess að fara út í búð sitjum við heima og veljum í matarkörfuna í tölvunni, fáum hlutina senda heim, eða a.m.k. sækjum bara allt heila klabbið á einn stað. Krakkar sem áður sátu í skólastofu eru flest búin að kynnast námi yfir netið, hvort sem það hefur verið vegna sóttkvíar, skiptingar nemenda í hópa eða, eins og framhalds- og háskólanemarnir okkar þekkja, vegna þess að allt nám hefur færst yfir í fjarnám. Fyrir þá sem ekki hafa hugað að þessum málum hingað til er þetta oft stærsta stafræna umbreytingin sem fólk er virkilega meðvitað um að hafa tekið þátt í.

Ímyndaðu þér ástandið núna ef við hefðum ekki þessa stafrænu tækni til að geta haldið áfram að vinna, geta haldið áfram að versla það í matinn sem við erum vön, geta haldið áfram að læra og til að geta hitt fólk í hljóði og mynd á netinu þegar við getum ekki eins auðveldlega hist í raunheimum.

Stafræn umbreyting á ógnarhraða

Stafræn tækni hefur ekki bara bjargað fjölmörgu á þessum kórónuveirutímum heldur hefur hraði stafrænnar umbreytingar einnig margfaldast. Satay Nadella, forstjóri Microsoft, sagði nýlega að hraði breytinganna væri að aukast svo mikið að fyrirtækið væri að sjá þróun sem venjulega tæki tvö ár núna taka einungis tvo mánuði.

Þessi ógnarhraða stafræna þróun er góð – eða er hún slæm? Hún er tvíeggja sverð. Það er gott að við skulum hafa tæknina til að geta haldið hlutunum gangandi, en það er ekki gott ef við höfum ekki hæfnina til að nýta hana – eða þegar sumir hafa hana og aðrir ekki, sem veldur ójöfnuði meðal fólks, meðal fyrirtækja – og meðal þjóða. Það eru t.d. ekki allir sem geta bara farið að vinna heima með hjálp tækninnar. Mörg störf bjóða ekki upp á það, og efnahagsáhrif faraldursins verða jafnframt til þess að fjölmörg störf glatast. Hvað þá?

Lykillinn að endurreisn efnahagskerfa

Sérfræðingum ber saman um að stafræn umbreyting, þ.e. aukin notkun stafrænnar tækni til að leysa hin ýmsu verkefni, sé lykillinn að því að endurreisa efnahagskerfi heimsins. En hvernig?

Jú, ólíkt því sem margir halda, þá veldur stafræn umbreyting ekki bara því að störf hverfa, heldur skapar hún fjölmörg störf. Innan OECD hafa 4 af hverjum 10 störfum sem skapast hafa sl. áratug verið innan stafrænt væddra atvinnugreina og OECD hefur lýst því yfir að hræðslan við fækkun starfa vegna tækniþróunar hafi ekki raungerst, heldur þvert á móti stuðlað að verulegri starfasköpun.

Stafræn tækni er einnig samofin nýsköpun og frumkvöðlastarfi – og fólk er almennt sammála um nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi er ein öflugasta leiðin til sköpunar bæði starfa og verðmæta. Án tækni verður nýsköpun ósköp fátækleg – jafnvel bara engin. Stafræn tækni gerir okkur líka kleift að þróa vörur og þjónustur sem auðvelt er að selja og yfir netið, og geta jafnvel kallað á minni fjárfestingu og minni áhættu en t.d. hefðbundnar áþreifanlegar vörur. Að ekki sé talað um þá miklu möguleika sem felast í því að nýta netið og stafræna tækni betur til sölu og markaðssetningar á alþjóðlega markaði.

Síðast en ekki síst gerir stafræn tækni okkur kleift að vinna, læra og taka þátt í hinum ýmsu verkefnum – og samfélaginu sjálfu – óháð staðsetningu, sem er fagnaðarefni í landi þar sem fáir búa dreift á stóru landsvæði.

Til að nýta þurfum við að kunna

En til þess að geta nýtt stafræna tækni til allra þessara góðu hluta þurfum við að kunna á hana. Stafræn hæfni er lykilatriði og hún er ekki eitthvað sem við fæðumst með. Jú, við erum klár að nota tölvurnar okkar og símana sem neytendur og notendur tækninnar – en við þurfum að verða öflugri í því að nýta hana til að skapa og að hafa frumkvæði að því að nýta hana okkur til framdráttar.

Þess vegna þarf stafræna hæfni. Og þess vegna hafa SVÞ og VR lagt áherslu á það í hvatningu til íslenskra stjórnvalda að efla þurfi stafræna færni og m.a. hafið samstarf að undirbúningi Stafræns hæfniseturs, ásamt Háskólanum í Reykjavík, til að stuðla að aukinni stafrænni hæfni meðal íslenskra stjórnenda og starfsfólks. Því þannig getum við nýtt tæknina í botn til að koma okkur á sem hraðastan og öflugastan hátt út úr kófinu!

Höfundur stýrir verkefnum sem snúa að stafrænni þróun hjá Samtökum verslunar og þjónustu.