Hópur þingmanna Vinstri grænna hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að íslenska rokið verði skilgreint sem sameign þjóðarinnar í lögum og að heimilt verði að krefjast auðlindagjalds af nýtingu vindorkunnar. Flutningsmenn eru meðal annars hin annáluðu frelsisblys Orri Páll Jóhannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir. Tillagan er vissulega reiðarslag fyrir Suðurnesjamenn, seglskútueigendur og þá sem enn kjósa að þerra þvott utandyra.

Eigi að síður telja hrafnarnir tillöguna til marks um hversu undarleg og fjarstæðukennd umræða um þjóðarauðlindir og skattlagningu er. Þarf að skattleggja þá sérstaklega sem kjósa að virkja vindinn sem blæs yfir land í þeirra eigu? Hvað með sólarljósið? Gilda ekki sömu lögmál um það? Erlendis færist það í vöxt að heimili framleiða eigin rafmagn með því setja sólarsellur á þök. Eru þá menn ekki að ganga freklega á sameign þjóðarinnar? Allt þetta styrkir þá skoðun hrafnanna að sú sameign þjóðarinnar sem er hvað skornustum skammti sé mannvitið.

Huginn & Muninn er einn af skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist 26. janúar 2023.