Frá því lok nóvember hafa um 10.000 tonn af kolmunna borist til Neskaupstaðar og Seyðisfjarðar þegar með er talinn afli Barkar og Beitis sem kemur að landi í dag, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Bjarni Ólafsson AK hefur landað tvisvar í Neskaupstað alls rúmlega 3.000 tonnum og Vilhelm Þorsteinsson EA landaði þar sl. miðvikudag um 500 tonnum af frystum kolmunna. Vilhelm Þorsteinsson hélt síðan til Seyðisfjarðar og landaði þar tæplega 1.100 tonnum í fiskimjölsverksmiðjuna. Beitir NK er væntanlegur til Neskaupstaðar í dag með 3.000 tonn og Börkur NK er væntanlegur til Seyðisfjarðar með 2.300 tonn.

Gunnar Sverrisson, verksmiðjustjóri á Seyðisfirði, sagði að þar ríkti ávallt gleði þegar afli bærist til verksmiðjunnar. Vilhelm Þorsteinsson landaði þar fyrsta farminum í gær en síðasta löndun í verksmiðjuna þar á undan var 18. maí sl. og þá var einnig tekið á móti kolmunna.

Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, segir að komunnafiskiríið í færeysku lögsögunni megi nú líkja við mok. „Þessi túr gat ekki gengið betur og fiskurinn er afar feitur og fallegur. Við vorum tvo sólarhringa á veiðum og fengum þessi 2.300 tonn í fjórum holum norðaustur af Færeyjum. Það var dregið frá 7 og upp í 12 klukkutíma og aflinn í hverju holi var frá 460 tonnum og upp í 670 tonn. Þetta getur ekki verið betra,“ sagði Hálfdan.

Nú er hafa Síldarvinnsluskipin lokið við að veiða kvótann og framundan er því jólfrí hjá áhöfnum þeirra.