,,Það er afleitt að þurfa að byrja jafn seint á loðnuveiðunum nú og raun ber vitni. Tíminn líður hratt og það er ótrúlega stuttur tími til stefnu. Hrognataka hefur oft hafist þegar loðnugangan er komin til móts við Vestmannaeyjar. Reyndar hafa þau hrogn, sem þá eru tekin til frystingar, ekki verið af mestum gæðum en það munar um hvern daginn eftir það,“ segir Albert Sveinsson skipstjóri á Víkingi AK í samtali á heimasíðu HB Granda.

Þegar rætt var við Albert í gær var Víkingur AK á leið til Vopnafjarðar með um 1.580 tonn af loðnu sem fékkst í tveimur köstum í fyrrakvöld við Tvísker, skammt vestan við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Loðnan var stór og góð, um 60% aflans var hrygna, og hún hentar því vel til frystingar.

,,Við tókum tvö köst. Fengum um 1.000 tonn af loðnu í fyrra kastinu og tæp 600 tonn í því síðara. Það var mokveiði á svæðinu. Við byrjuðum við Tvísker og enduðum um þrjár mílur austan við Ingólfshöfða.“

Þegar Víkingur við af svæðinu var loðnan komin að Ingólfshöfða þannig að það var ferð á henni.