Síldarvinnslan á Neskaupsstað greinir frá því að aðkomutogarar hafi samtals landað tæplega 1.700 tonnum í Neskaupstað í sumar. Er þar um að ræða akureysku skipin Björgúlf EA og Hjalteyrina EA, sem Samherji gerir út, auk Kaldbaks EA, sem Útgerðarfélag Akureyrar gerir út.

Í sumar hafa aðkomutogarar landað oft í Neskaupstað og þegar landaður afli þeirra er tekinn saman reynist hann vera tæplega 1.700 tonn. Togararnir sem um ræðir eru Samherjaskipin Björgúlfur EA og Hjalteyrin EA auk Kaldbaks EA sem gerður er út af Útgerðarfélagi Akureyringa.

„Skipin hafa verið að veiðum út af Austfjörðum og hagkvæmt hefur þá verið að landa aflanum eystra,“ segir á fréttavef Síldarvinnslunnar. „Áður hefur komið fram hér á heimasíðunni að Kaldbakur hefur einnig landað sex sinnum á Seyðisfirði nú í ágúst og september.“

Þá segir að Björgúlfur EA hafi landað fjórum sinnum í Neskaupstað í sumar, samtals um 540 tonnum. Hjalteyrin EA landaði þar alls sjö sinnum, samtals 545 tonnum. Kaldbakur EA er síðan nú að landa í fjórða sinn og er afli hans samtals um 580 tonn.

„Að auki hefur Anna EA landað grálúðu í Neskaupstað, einkum í byrjun árs og í sumar. Landanir hennar þar eru tólf hingað til og heildarafli um 1030 tonn. Anna veiðir grálúðuna í net. Drjúgur hluti grálúðuafla Önnu hefur verið unninn í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og þá hefur hluta þess afla sem Anna hefur landað annars staðar verið ekið til Neskaupstaðar þar sem hann hefur verið unninn.

Þá ber einnig að hafa í huga aðkomubáta sem gerðir eru út á línu frá Neskaupstað drjúgan hluta úr ári og skapa mikil umsvif við höfnina.“

Síldarvinnslan segir þessar landanir skipta hafnarsjóð Fjarðabyggðar miklu máli. Rætt er við Hákon Ásgrímsson framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna sem segir þær afar jákvæðar.

„Þessar landanir hafa aukist mikið frá fyrri árum og þær hafa jákvæð áhrif á tekjur hafnarsjóðs, bæði tekjur í formi hafnargjalda og aflagjalda. Ekki má heldur gleyma því að landanirnar eru mikilvægar fyrir fyrirtæki á svæðinu. Ég vil til dæmis í því sambandi nefna fyrirtæki sem sinna löndunarþjónustu og flutningafyrirtæki. Auðvitað fögnum við þessari auknu umferð skipa um hafnirnar, hún er afar jákvæð,“ segir Hákon.

Þá greindi Síldarvinnslan frá því í gær að Bjarni Ólafsson AK hafi komið með 460 tonn af norsk-íslenskri síld til Neskaupstaðar og vinnsla á henni hafi verið á fullum krafti í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar.

Nánar má lesa um þetta á vef Síldarvinnslunnar.